payday loans

30. júlí 2010

Gogogic landar millón dollara samning við “stóran netleikjaútgefanda”

Flokkun: Fréttir, Gogogic — Vilhelm Smári @ 5:08 f.h.

Samkvæmt frétt MBL.is í gær hefur netleikjaframleiðandinn Gogogic landað 1 milljón dollara samning við framleiðanda “tveggja af stærstu nettölvuleikjum fyrir börn.” Þetta er óneitanlega há upphæð og augljóst er að um stórt verkefni er að ræða.

Er fyrirtækið víst að vinna að uppfærslu á einum leik og viðbót við annan, en hvaða leikir það eru (og hvaða framleiðandi það er) hefur enn ekki verið gefið upp, og verður líklega ekki gefið upp fyrr en nær dregur útgáfu. Notendur leikjanna sem Gogogic er að vinna að uppfærslum og viðbótum að hlaupa á milljónum, og að sögn Jónasar Antonssonar gæti vel verið að fyrirtækið fái fleiri verkefni frá sama útgefanda ef upp gengur.

Hver er góður í reikningi? Því ég vil endilega fá einhvern til að leggja saman tvo og tvo og segja mér hvaða leikir og hvaða fyrirtæki þetta er!

Heimild: MBL.is

22. júlí 2010

Leikir fyrir hugann…

Flokkun: Icelandic Gaming Industry — Árni Brynjar @ 11:06 e.h.

Einu sinni voru leikir ekki flóknari en það að hægt var að stjórna þeim með einföldum stýripinna. Það var lítið um mögulegar skipanir sem oftast voru ekki flóknari en „hreyfa kall upp, hreyfa kall niður“. Með tímanum hinsvegar bættust við auknir möguleikar til stjórnunar með tilkomu lyklaborðs, músar, flóknari stýripinnum og sérhæfðum leikjastýripinnum líkt og þeim sem við notum í dag. En það er ekki nægilegt, finnst sumum, að stjórna leikjum með því að ýta á takka eða hreyfa pinna eða mús. Við höfum þegar séð núverandi leikjatölvur prófa nýja hluti, þá sérstaklega með hreyfiskynjum líkt og í Nintendo Wii og nýlega X360 Kinetics og Playstation Motion. Þá er farið að skipta máli hvernig notandinn hreyfir meira en bara puttana. En leitin að nýjum stjórnmöguleikum stoppar ekki þar enda má sjá dæmi um notkun hljóðnema sem gera notanda kleift að nota rödd sína til aðstoðar.

Það er þess vegna sem að enn einn möguleikinn vekur áhuga minn. Í gegnum árin og þá oftast í vísindaskáldskap hefur oft verið ýjað að stjórnun tækja með huganum þar sem maður og vél eru farin að sameinast, hugur mannsins sökkvandi inn í vélina þar sem að stjórn hans yfir maskínunni er fullkomin. Núverandi tækni gerir okkur kleift að gera eitthvað í líkingu við þetta og þess vegna er það frekar spennandi að vita að hér á Íslandi í skrifstofum staðsettar á Lækjargötu er íslenskt fyrirtæki í frumkvöðlastarfsemi við að búa til forrit sem nýta þessa tækni. Þetta eru hinir réttnefndu Mindgames sem að ég fékk að heimsækja nú um daginn.

Deepa Iyengar, forstjóri, tók á móti mér og við eyddum talverðum tíma í að ræða um þróun þessarar tækni auk starfsemi Mindgames. Tæknin bakvið þetta er einföld í útskýringum þó svo að það sem bakvið liggur sé mun flóknara. Í hnotskurn er þetta svona; heilinn í okkur sendir frá sér ákveðnar bylgjur sem ákvarðast af hugarástandi. Með sérstökum búnaði er hægt að einangra mismunandi tegundir af hugarástandi og nýta það sem innslátt í hugbúnaði hvort sem um er að ræða leiki eða forrit. Neurosky er einn slíkur framleiðandi og hafa þeir búið til nema sem að þeir selja svo til hönnuða í von um að með frekari samvinnu megi þróa þessa tækni til að verða fullkomnari, það er að segja með bættri lesgátu ef svo má orða það. Mindgames er einn slíkur hönnuður og hefur þegar nýtt sér tæknina til að hanna leik að nafni Tug of Mind.

Um er að ræða um einskonar reipitog sem ræðst af hæfileika notandans til að einbeita sér á meðan grettandi andlit þeysir í mann óyrðum. Hægt er að taka mynd af vinum og leyfa leiknum að setja andlitið á þrívíddarmódel auk þess að biðja viðkomandi aðila um að segja eitthvað pirrandi eða truflandi til þess að gera leikinn erfiðari. Ég fékk að prufa leikinn, sem er í vinnslu fyrir Iphone, og hafði ákaflega gaman af. Mér gekk þó ekki sérlega vel í fyrstu tilraun, heitur dagur og nýtt fólk valdandi mér smá ugg sem að leiddi til langrar afslöppunarbaráttu við „fésið“ í símanum. Seinni lota mín var gegn mynd af móður Deepu á erfiðari stillingu en þegar ég var kominn á lagið með þetta og gat sett mig á einbeittan og rólegan hugarstað leið ekki á löngu áður en andlitið byrjaði að brosa og ég hafði unnið leikinn. Leikur sem ræðst af hæfileika til að halda ró sinni og einbeytingu. Furðulegt en satt.

Neurosky eru þó ekki einir um þessa tækni. Nefna má keppinauta eins og Emotiv sem hafa samskonar tækni en þó verð ég að játa að nemi þeirra lýtur ekki sérlega vel út og einhvernveginn finnst mér eins og hann sé einungis hannaður fyrir sköllótta.

Þegar ég spurði út í þær hættur sem fylgja þessum iðnaði útskýrði Deepa að það væri mjög erfitt að skila svona afurð til markaðsins á réttan hátt. Fyrir það fyrsta þá virka heilar okkar ekki alltaf nákvæmlega eins. Fólk nálgast afslöppun á mismunandi hátt og því gæti farið að notandi myndi taka upp höfuðtólið, prófa leik og ganga illa og þar með áætla að annaðhvort virki þetta ekki eða þá að eitthvað sé að heila hans. Þó sé hugmyndin hjá Mindgames að bjóða upp á einskonar aðlögun inni í leiknum þar sem að notandinn er beðinn um að prófa ýmsar slökunaraðferðir og getur fylgst með árangri sínum um leið.

Annar hættupunktur er sá að þar sem um er að ræða frumkvöðlastarfsemi eru vægast sagt ekki margir sem eiga og nota tilgreindan heilabylgjunema. Það gæti orðið erfitt að sannfæra hinn almenna notanda um hversu „svalt“ það er að nota svona tæki. Þó ef við hugsum til fortíðar var sá tími sem að notendur bluetooth stykkja fussuðu og sveiuðu yfir hversu hallærislegur þessi aukabúnaður var.

Tug of Mind er enn í vinnslu en þó mætti búast við honum bráðlega en samkvæmt Deepu veltur það allt á hversu vel gengur hjá Neurosky að koma með búnað sem er I-phone nothæfur. En Tug of Mind er ekki eina heilafóstur Mindgames. Eins og flestir framtakssamir eru þeir með nokkrar hugmyndir til viðbótar í vinnslu, þó á grunnstigi. Leikurinn Gods & Mortals á að byggja á sömu tækni en öðruvísi spilun. Skv Deepu hefur hún alltaf heillast að fjölspilunarleikjum þar sem að fólk þarf að vinna saman á einhvern máta og hugmyndin er að gera það að megin áherslu í leiknum. Um er að ræða leik þar sem fólk bæði með heilabylgjunema og án hans getur spilað. Heilabylgjunemaeigendur myndu taka á sig hlutverk guða, sem svífa um á himnum og reyna að spilla fyrir mannverunum (þeim sem eiga ekki heilabylgjunema) þar sem þeir hjálpast að og reyna að klifra upp skjáinn til guðanna, til þess að steypa þeim niður.

Einn merkilegasti partur heimsóknar minnar held ég að hafi verið framtíðarsýn Mindgames. Hugmynd þeirra um hvernig þessi tækni megi notast við kennslu, þá sérstaklega á grunnskólastigi er hreint sagt stórkostleg. Í stuttum myndbút fékk ég að sjá hvernig slíkur leikur myndi virka og ég varð vægast sagt öfundsjúkur út í framtíðarkynslóðir, sem gætu ef til vill fengið að njóta hálfgerðrar Jedi-þjálfunar… mínus sverðin. Á tíu mínútna spilunartíma myndu börnin þurfa að ná einbeytingu upp að vissu marki í sameiningu til þess að setja af stað atburðarrásir innan eins og miklahvell sem að síðan myndi leiða til frekari möguleika eins og að þróa plánetur, deila árangri sínum auk þess að fstigatöflur og einspilun.

Ef þessi tækni og markaðssetning heppnast, þá erum við að ræða um stórkostlegt tækifæri til leikjahönnunar hér á klakanum; fæðingarstaðs lítilla hugameistara.

En til þess að framtíðin beri árangur má búast við að Mindgames þurfi auka starfskraft. Þegar aðspurð sagði Deepa að fólkið sem þau kæmu þá líklegast til með að þurfa væru þau sem hefðu á sér sterka nýsköðunarhlið. Fyrirtækið er allt um hugmyndir og hvernig má nota þær. Þess vegna skiptir miklu máli að fólkið geti unnið á fleiri en einu sviði til að koma sem mestu frá sér. Nýlega voru Mindgames að senda frá sér yfirlýsingu um hvernig starfskraft þau vantar á www.igi.is. Endilega skoðið færsluna ef þið hafið þekkinguna og viljann til að leggja þitt af mörkunum hjá Mindgames.

16. júní 2010

IGI meetup 13

Flokkun: Icelandic Gaming Industry — Árni Brynjar @ 12:38 e.h.

Komið sæl.

Í kvöld á efri hæð Balthazar verður fundað af IGI og umrætt málefni verður Nordic games program þar sem að Jónas Björgvin frá Gogogic mun deila reynslu sinni af þeim. Ef þig langar til að kynnast starfsemi IGI eða einfaldlega mæta og spjalla við fólk af sama toga er um að gera að mæta.

Nána á síðu IGI.

4. júní 2010

Myndönd af leikjadegi HR og IGI komin á netið

Flokkun: Fréttir, IGI Awards, Icelandic Gaming Industry — Vilhelm Smári @ 3:35 f.h.

Ef einhverjir gátu ekki mætt á leikjadag HR og IGI vegna tímaþrengsla eða landfræðilegrar fjarlægðar (líkt og undirritaður) má nú sjá fyrirlestra og verðlaunaafhendingu IGI Awards 2010 á YouTube.

Það eina sem þið þurfið að gera er að smella á þennan tengil sem færir ykkur á spilunarlista sem inniheldur alla 17 partana.

Það var virkilega gaman að sjá hversu fjölbreytt verkefni bárust í keppnina. Ég hlakka virkilega til að sjá sum þeirra verða að veruleika. Path to Ares frá Clockwork Alien Games, en það verkefni vann aðalverðlaunin í ár, virðist vera virkilega alvarlegt fyrirbæri, en einnig voru aðrir leikir sem hljómuðu virkilega áhugaverðir. Endilega kíkið á myndböndin, skoðið fyrirlestrana og horfið á verðlaunaafhendinguna.

30. maí 2010

Leikjadagur IGI

Flokkun: Annað — Árni Brynjar @ 8:04 e.h.

Ég kíkti í gær á leikjadag IGI og HR. Tilgangur þessa dags eða fundar var að koma á framfæri nýrri sérhæfingarbraut HR sem felur í sér leikjahönnun og er sú braut gerð í samvinnu við IGI. Fundurinn var vel setinn og ræðuhaldarar komu frá ýmsum geirum leikjaiðnaðsins. Til dæmis var vakin athygli á áframhaldandi minnihluta kvenna innan leikjaiðnaðsins (eða tæknifögum almennt), þó svo að ástæðan sé í raun engin. Það voru skemmtilegir fyrirlestrar um gervigreind sem að sýndu fram á skort hennar í tölvuleikjum almennt. Margir leikir lúkka vel út og eru skemmtilegir í spilun, en þegar kemur að því að herma eftir mannlegum samskiptum má segja að tölvuleikir séu flestir enn að reyna að kveikja eld með því að nudda saman tveim spýtum. Þetta kemur ef til vill til með að verða mikilvægt í þeirri leikjaþróun sem á eftir að eiga sér stað hér á landi. Minnst var á af Hannes Högna hjá CADIA (gervigreindarseturs HR) að þeir mundu vera í samstarfi við CCP við Incarna, útvíkkun á EvE online sem felur í sér að geta stigið útúr geimskipinu sínu og átt raunveruleg mannleg samskipti í sýndarheimi.

Bara svo þið vitið, umsóknarfrestur í HR rennur út á morgun, tékkið á þessu ef þið hafið áhuga hjá þeim.

Hinn tilgangurinn með þessum leikjadegi var að veita verðlaun fyrir sigurvegara IGI awards leikjakeppninnar. Um 11 hugmyndir bárust dómnefnd frá hópum sem voru á bilinu 1 til 10 manns. Það kom kannski ekki á óvart að Leikjahugmyndin “Path to Ares” bar sigur, enda var það lið langstærst, eða um 10 manns. Frekari upplýsingar um þetta munu birtast á næstu dögum á IGI.is

25. maí 2010

Tyrannis á morgun

Flokkun: Fréttir — Árni Brynjar @ 9:27 e.h.

CCP mun setja upp nýjasta aukapakkann sinn fyrir EvE online á morgun. Pakkinn ber nafnið Tyrannis og er fyrsta skref í að leyfa spilendum að hafa áhrif á plánetur leiksins, með því að setja upp byggingar á þeim, leita að hráefnum og fleiri herkænskulega hluti. Þetta er sá partur leiksins sem kemur til með að renna saman við Dust 514, skotbardagaleik CCP sem kemur eftir nokkur ár á console.

Nánari upplýsingar má að sjálfsögðu nálgast á heimasíðu Eve .  Ég mun að sjálfsögðu setja pakkann upp eins fljótt og mér er auðið og skoða innihald hans nánar enda lengi beðið eftir tækifæri til að pota í þessa hnetti útum allt.

21. maí 2010

IGI verðlaunin 2010 verða afhent 29. maí

Flokkun: Fréttir, IGI Awards, Icelandic Gaming Industry — Vilhelm Smári @ 3:36 f.h.

Fyrir þá sem ekki vissu hefur verðlaunaafhendingu IGI verðlaunanna 2010 verið seinkað til 29. maí og verður hún því haldin á sama degi og Leikjadagur IGI og tölvunarfræðideildar Háskóla Reykjavíkur.

Dagskráin hefst klukkan 14:00 og stendur til klukkan 18:00 og verður verðlaunaafhendingin, sem og aðrir viðburðir Leikjadags IGI og HR, haldin í Bellatrix (M1.01) í húsnæði Háskóla Reykjavíkur.

Endilega látið sjá ykkur ef þið hafið tíma.

15. maí 2010

EVE er þriðji besti PC leikurinn samkvæmt lesendum PC Gamer [uppfært]

Flokkun: CCP, EVE Online, Fréttir — Vilhelm Smári @ 3:00 e.h.

eve_tyrannis

Loks gefst manni færi á að henda inn færslu.

EVE Online lenti í þriðja sæti yfir bestu leiki allra tíma í lesendakönnun tímaritsins PC Gamer, en tímaritið er síðasta prentaða vígi PC leikjaspilenda. Einungis Fallout 3 og Half-Life 2 náðu hærra en íslenski fjölspilunarleikurinn margkunnugi. “Einn netþjónn, fullur af hættum hvert sem þú ferð,” segir Dennis nokkur Rogers um leikinn. “Þú getur verið sprengdur í loft upp eða rifinn í tætlur í skuggalegum viðskiptum. Og það besta? Framleiðendur leiksins hvetja til þess.”

Þetta er merkileg viðurkenning fyrir EVE Online og CCP í heildina og við óskum fyrirtækinu að sjálfsögðu til hamingju með þetta.

Þess má annars geta að EVE Online er síður en svo að fara að deyja þrátt fyrir háan aldur, en nýjasti aukapakkinn, Tyrannis, kemur út miðvikudaginn 26. maí, og frá og með 8. júní geta leikmenn svo notað plánetur sér í hag. Það eru því spennandi tímar framundan í EVE Online.

[Uppfært 16. maí: Las á vefsíðu leiksins að Tyrannis hafi verið frestað og hefur fréttinni verið breytt í ljósi þess.]

7. maí 2010

EVE Online á afmæli, CSM kosningar hefjast

Flokkun: CCP, EVE Online, Fréttir — Vilhelm Smári @ 3:54 f.h.

tyrannis 

EVE Online er orðinn ansi gamall þótt ekki sjái á grafíkinni, en leikurinn hélt upp á 7 ára afmæli sitt í gær, 6. maí. Í tilefni dagsins var þessi “til hammó með ammó” þráður opnaður auk þess sem CCP gaf þrjá aukavinninga í BIG lottóið, þar á meðal heilt ár af spilunartíma í þriðja vinning. Endilega óskið CCP til hamingju og takið þátt í Lottóinu ef þið getið, það gæti jafnvel verið þess virði.

Í gær hófust einnig kosningar til CSM (Council of Stellar Management) eru hafnar og má kjósa í gegnum CSM hluta EVE Online vefsíðunnar, nánar til tekið hér. Allir leikmenn sem hafa borgað fyrir reikning sinn í 30 daga eða lengur eru kosningabærir.

Að endingu viljum við minna á að nýjasti aukapakkinn fyrir EVE Online, Tyrannis, verður gefinn út 18. maí næstkomandi. Skoðið nýjasta trailerinn hér eða á YouTube síðu CCP Games.

20. apríl 2010

CCP veitt Útflutningsverðlaun forseta Íslands

Flokkun: CCP, Fréttir — Vilhelm Smári @ 4:39 e.h.

CCPNú fyrir stundu var CCP veitt Útflutningsverðlaun forseta Íslands afhent við hátíðlega athöfn og tók Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri fyrirtækisins, við þeim. Samkvæmt frétt á mbl.is fær CCP verðlaunin “fyrir að hafa náð einstökum árángri á heimsvísu í þróun og markaðssetningu fjöldaþáttöku tölvuleikja.” Þar segir enn fremur að fyrirtækið fari “fremst í fylkingu fyrirtækja hér á landi sem saman mynda nýja tegund framleiðsluiðnaðar, sem byggir starfsemi sína á sköpunargleði, lifandi hugsun, háþróaðri tölvutækni og viðskiptalegu innsæi.”

Útflutningsverðlaunin eru, samkvæmt vefsíðu útflutningsráðs, veitt einu fyrirtæki á ári fyrir “markvert framlag til eflingar útflutningsverslunar og gjaldeyrisöflunar.” Velta CCP á síðasta ári var um 7 milljarðar króna svo það eru miklir peningar sem fyrirtækið er að skila inn til Íslands.

Eins og margir vita fer EVE Online sífellt stækkandi, bæði þökk sé útgáfu gjaldfrjálsra viðbóta fyrir leikinn sem og trygglyndi núverandi spilenda, en leikurinn hefur 350.000 spilenda um allan heim. Næsta viðbót, Tyrannis, er væntanleg 18. maí næstkomandi og byggir EVE heiminn undir samþættingu við skotleikinn Dust 514 sem verið er að þróa í stúdíói fyrirtækisins í Peking.

9. apríl 2010

Gogogic gefur líkneski af Freyju í Vikings of Thule og afsakið hlé

Flokkun: Fréttir — Vilhelm Smári @ 5:47 e.h.

Ef þú ert að spila Vikings of Thule og langar í spes hlut í leiknum er um að gera að skella sér á Facebook og tagga Gogogic í einhverri stöðufærslu því fyrir vikið færðu Ever-Glowing Idol of Freyja sem gefur þér hvorki meira né minna en 10 auka RP dag hvern. Eftir hverju ertu að bíða?

Að auki vil ég afsaka þetta hlé sem varð á síðunni frá því við tilkynntum um stefnubreytinguna. Ástæðan er alls ekki sú að það sé ekkert að gerast - þvert á móti, MindGames Tug of Mind til samþykktar hjá Apple 30. mars síðastliðinn, og ætti því að koma inn á Apple netverslunina innan nokkurra vikna. Þá var fyrirtækið að flytja í ný húsakynni á Lækjargötunni, réttara sagt á 4. hæð Lækjargötu 12 (sömu byggingu og Íslandsbanki).

Það hefur mikið verið að gerast í mínu einkalífi, en ég hef einnig verið að velta mér upp úr þónokkrum hlutum sem eru efni í nokkrar greinar. Þar má meðal annars nefna stafrænar höfundaréttarvarnir (DRM), en einnig gæti verið að ég skrifi stuttlega um bókina Changing the Game: How Video Games Are Transforming the Future of Business sem ég er að lesa. Hún er örlítið gömul, var gefin út á svipuðum tíma og íslenska bankakerfið hrundi, en er engu að síður áhugaverð lesning og uppfull af áhugaverðum fróðleik.

22. mars 2010

Tilkynning frá GameOver.is - Stefnubreyting og nýjar áherslur

Flokkun: Fréttir — Vilhelm Smári @ 11:54 f.h.

GameOver.is mun frá og með deginum í dag auka við umfjöllun um íslenska tölvuleiki og íslenska tölvuleikjaiðnaðinn og hætta alfarið með hefðbundinn fréttaflutning af leikjum sem tengjast erlendum fyrirtækjum. GameOver.is mun þó áfram birta frumsamdar greinar og gagnrýnir sem tengdar eru erlenda tölvuleikjaiðnaðinum almennt og ekkert efni sem áður hefur verið birt verður fjarlægt af síðunni.

Helsta ástæðan fyrir stefnubreytingunni er sú að íslenski leikjaiðnaðurinn er sífellt að vaxa og dafna og fjöldi fyrirtækja starfar nú á sviði tölvuleikja eða leikjatengdra lausna. Má þar helst nefna fyrirtækið CCP hf., en Gogogic, Sauma Industries og MindGames koma einnig sterkir til leiks. Þá er þess skemst að minnast að Samtök íslenskra tölvuleikjafyrirtækja, Icelandic Gaming Industry (IGI), voru sett á legg 25. september síðastliðinn, en samtökin starfa innan Samtaka iðnaðarins.

GameOver.is stefnir að því að vera leiðandi í fréttaskrifum um íslensk tölvuleikjafyrirtæki og leiki þeirra, vekja athygli á starfsemi þeirra, og að reyna eftir fremsta megni að þjóna þeim á hvern þann veg sem mögulegt er.

Það skal þó ítrekað að leikjarýnir, neytendagreinar (t.d. verðkannanir) og aðrar frumsamdar greinar verða enn skrifaðar og birtar á síðunni.

Fyrir almennar fyrirspurnir um GameOver.is er hægt að hafa samband við Vilhelm Smára Ísleifsson í gegnum netfangið vilhelm [at] gameover.is.

Er þetta það sem koma skal í World of Darkness?

Flokkun: Fréttir, Hlutverkaleikir, MMOG, PC — Vilhelm Smári @ 11:14 f.h.

Á ferð minni um heima alnetsins rakst ég á þetta litla myndband sem birt var í sýningarskáp NVIDIA á YouTube. Myndbandið kemur frá CCP og sýnir tækni sem lætur klæði og hár hreyfast náttúrulega í sýndarheiminum.

Stóra spurningin er auðvitað hvort þetta eigi eftir að enda í World of Darkness, næsta MMO leik fyrirtækisins. Hvað haldið þið?

21. mars 2010

God of War III (PS3) - Leikjadómur

Flokkun: Hasarleikir, PlayStation 3, Umfjallanir, Ævintýraleikir — Vilhelm Smári @ 7:53 e.h.

gow3_ss01

Ég keypti mér God of War um leið og hann kom í verslanir árið 2005 og sá síður en svo ekki eftir peningnum sem ég varði í hann. Sagan var þétt, útlitið epískt, spilunin þrælskemmtileg, jafnvægið á milli bardaga og púsla var nær fullkomið, og leikurinn kynnti til leiks reiðasta og harðasta nagla leikjasögunnar, Spartverjann Kratos. Ég man enn að ég sat stjarfur eftir að hafa spilað í gegnum lokakafla leiksins og hugsaði hvað það yrði erfitt að toppa hann… sem God of War II gerði.

God of War II kom út tveimur árum seinna og toppaði fyrri leikinn á alla mögulega vegu. Leikspilunin var að miklu leyti sú sama og í God of War, en nýjum hlutum var bætt við með nýrri vopnum og göldrum ásamt möguleikanum að hægja á tímanum á völdum stöðum í leiknum. Fyrir utan krystaltæra grafík, sem var jafnvel enn flottari á PlayStation 3 vélum sem uppscaleuðu grafíkina í PS2 leikjum, voru bardagarnir jafnvel enn stærri og flottari en þeir voru í God of War, og enn og aftur sat maður á meðan kreditlistinn rúllaði upp skjáinn og hugsaði sér hvernig í ósköpunum þeir ætluðu að sprengja epíska skalann sem God of War II uppfærði.

En einhvern veginn tókst þeim það. God of War III er, og ég stend fyllilega við þessi orð, epískasta upplifun sem hægt er að finna í tölvuleikjum. Gleymið bardaganum við risann í Rhodes í God of War II. Drekarnir í Baldur’s Gate II eru eins og gæludýr í samanburði við sumt sem er í God of War III. Og Lich King í World of WarCraft? Afsakið, Arthas, bardaginn við þig er flottur, en hann toppar ekki það sem ég hef upplifað í God of War III.

En það er ekki nóg að leikur sé epískur til þess að hann sé góður. Stóra spurningin er að sjálfsögðu hvort God of War III sé nógu góður til þess að virkilega eiga séns í að vera valinn einn af PlayStation leikjum ársins.

(meira …)

6. mars 2010

Heitið á mottusöfnun leikjafyrirtækja og GameTíví í mottumars

Flokkun: Annað, Fréttir — Vilhelm Smári @ 8:04 e.h.

mottumars

Marsmánuður er víst hinn nýi Movember því Krabbameinsfélagið hefur ýtt úr vör söfnun þar sem fólk getur lagt áheit á einstaklinga og lið sem ætla sér að safna yfirvaraskeggi út mánuðinn, sem hefur verið titlaður mottumars. Árlega greinast 716 karlmenn með krabbamein og deyja 278 karlmenn úr krabbameini árlega, svo hér er um háalvarlegt mál að ræða.

Hvað kemur þetta tölvuleikjum við?

Þetta kemur tölvuleikjum heilmikið við. Nokkur íslensk fyrirtæki sem sérhæfa sig í tölvuleikjum eða leikjatengdum lausnum eru nefnilega skráð til leiks, og sömuleiðis GameTíví bræðurnir Sverrir Bergmann og Ólafur Þór Jóelsson. Með því að smella á tenglana hér fyrir neðan getið þið lagt inn áheit á þau lið sem ég hef grafið upp á vefsíðu söfnunarinnar.

Betware
TM Betware
CCP hf.
Gogogic
GameTíví

Ég hvet lesendur eindregið til að styðja leikjaliðin í keppninni og söfnunina í leiðinni.

Skoðið nýja leikinn frá MindGames, Tug of War

Flokkun: Fréttir, Þjálfunarleikir, Þrautaleikir — Vilhelm Smári @ 7:34 e.h.

mindgameslogo2

Íslenska fyrirtækið MindGames var að leggja lokahönd á fyrsta leik sinn, Tug of War, nú á dögunum, en hann er væntanlegur á iPhone í næsta mánuði.

Það er óhætt að segja að MindGames skapi iPhone leiki sem eru frábrugðnir öllum öðrum, því fyrirtækið sérhæfir sig í að búa til leiki fyrir MindSet apparatið frá NeuroSky, en tólið les heilabylgjur og breytir þeim í tölvugögn. Í Tug of War nota leikmenn heilabylgjurnar til þess að breyta fúla Skúla í glaða Gulla. Hér að neðan má sjá leikinn í spilun, hið fyrsta sem birt er á netinu.

Það er þó ekki enn á hverra færi að spila leikinn, því miður - MindSet eitt og sér kostar 200 dali - en hugmyndin er engu að síður sniðug og ég mun fylgjast spenntur með því sem drengirnir gera í framtíðinni.

Portal 2 kemur út um jólin, sniðgengur PS3

Flokkun: Fréttir, PC, Xbox 360, Þrautaleikir — Vilhelm Smári @ 7:13 e.h.

portal

Þetta á ekki að koma neinum á óvart, en Valve hafa staðfest Portal 2, nokkuð sem hver heilvita manneskja hefði getað séð koma úr tugi kílómetra fjarlægð þar sem Portal var ekki bara vel tekið af gagnrýnendum heldur tölvuleikjaunnendum líka.

Ef marka má bandarísku leikjaverslunina GameStop snýr leikurinn aftur með nýjar persónur, fleiri andstyggilega tilraunaklefa, áður óséð svæði á rannsóknarstofum Aperture Science, og endurfundi með uppáhalds tölvu allra (nema þeirra sem elska SHODAN meira), GLaDOS. Einnig hef ég heyrt að það verði kaka í leiknum, en það gæti verið lygi.

Þar sem Gabe Newell hatar Playstation 3 ennþá mun leikurinn ekki koma á hana, en Xbox 360 og PC útgáfur hafa verið staðfestar. Leikurinn kemur út um jólin.

2. mars 2010

Hvað er að gerast hjá Infinity Ward? [Uppfært]

Flokkun: Fréttir — Vilhelm Smári @ 11:44 f.h.

infinity_ward_logo

Eitthvað virðist vera að gerast hjá Infinity Ward, framleiðanda Call of Duty: Modern Warfare 2 og fleiri góðra leikja, því samkvæmt G4tv.com birtist í gær hópur öryggisvarða af útkastarasortinni á skrifstofunni sem neituðu að útskýra veru sína. Sagt er að stjórnendur fyrirtækisins, Vincent Zampella og Jason West, hafi farið á fund með lykilfólki hjá Activision Blizzard, eigendum Infinity Ward, um morguninn og ekki sést síðan.

Fyrr í dag hafði Linkedin prófíl Jason West verið breytt á þann veg að ljóst væri að hann væri ekki lengur að vinna fyrir Infinity Ward, og sami maður birti færslu á Facebook þar sem hann sagðist vera að sötra áfengi, atvinnulaus.

Jason West stofnaði Infinity Ward fyrir rúmlega 9 árum, vann fyrst að Medal of Honor leikjunum fyrir Electronic Arts og síðar meir skapaði hann Call of Duty seríuna. Nýjasti leikur Infinity Ward, Call of Duty: Modern Warfare 2 er einn best seldi leikur frá upphafi svo brotthvarf West og Zampella má líklega ekki tengja við óvelgengni leikja þeirra.

Í ársskýrslu Activision Blizzard kemur fram að farið hafi verið í saumana á óhlýðni yfirmanna Infinity Ward og virðast West og Zampella hafa verið reknir í kjölfarið. Ferli forsvarsmanna Infinity Ward lýkur því ekki ósvipað sumum bókum, þar sem illi konungurinn lætur hálshöggva lénsherra af engum öðrum ástæðum en óhlýðni, og herðir tangarhald sitt á léninu sem hinn höfuðlausi lénsherra sá um.

Forsvarsmenn Activision hafa ekki gefið neinar útskýringar á málinu hingað til og spögúlera áhugamenn nú hver ástæðan á bak við aðgerðirnar eru. Á spjallborði leikjaframleiðandans Obsidian Entertainment veltir einn notandi fyrir sér hvort þetta sé vegna þess að lykilmenn Infinity Ward hafi ekki viljað gera fleiri Call of Duty leiki í bráð, og er það alveg jafn trúveruð útskýring og hver önnur, sér í lagi þar sem Infinity Ward hefur gert lítið annað en að framleiða Call of Duty leiki síðan sá fyrsti kom út.

Tim Schafer, forseti Double Fine Productions, segir á Twitter að fólk eigi ekki að verða Activision reitt fyrir þetta, en hann hefur sjálfur ekki átt góð samskipti við fyrirtækið síðan það keypti Vivendi, sem átti að gefa út Double Fine leikinn Brutal Legend, fyrir nokkrum árum. “Getting mad at Activision for this kind of thing is like getting mad at an ape for throwing feces. It’s just how the beast communicates.”

Það verður spennandi að sjá hvernig framhaldinu háttar.

[Bætt við 4. mars]
Svo virðist sem West og Zampella ætli sér í hart við Activision því þeir hafa ráðið til sín lögfræðing og hafa kært fyrirtækið fyrir að greiða þeim ekki þóknun sem Activision hafði fallist á í fyrri samningi. [1UP.com] Hér er um alvarlegar ásakanir að ræða því Call of Duty: Modern Warfare 2 hefur velt hvorki meira né minna en 1 milljarði dollara síðan leikurinn kom út í nóvember í fyrra. West og Zampella ætla þó ekki bara að reyna að endurheimta peningana sem Activision skuldar þeim, heldur vilja þeir einnig fá til sín Modern Warfare vörumerkið. Hvort það sé til þess að þeir geti gert fleiri Modern Warfare leiki sjálfir, eða til þess að kæfa vörumerkið svo Activision geti ekki nýtt sér það, er þó óráðið.

Diablo FRAMHÖLD á leiðinni?

Flokkun: Fréttir, Hlutverkaleikir, PC — Vilhelm Smári @ 9:25 f.h.

Eins og margir vita vinnur Blizzard Entertainment hörðum höndum að gerð Diablo III sem undirritaður bíður með mikilli eftirvæntingu.

Þegar ég var að lesa í gegnum ársskýrslu Activision Blizzard, móðurfyrirtækis Blizzard Entertainment, kom ég hins vegar auga á áhugaverða línu.

Blizzard vinnur að þróun nýrra leikja, þar á meðal nýjan aukapakka fyrir World of WarCraft seríuna, Cataclysm, StarCraft: II: WIngs of Liberty, sem verður gefinn út ásamt nýju og endurbættu Battle.net, og framhalda á Diablo seríunni.”

Athugið hvernig þeir minnast ekki á Diablo III sem stakan leik heldur nota fleirtöluna, sem gefur til kynna að Diablo III sé ekki eini Diablo tengdi leikurinn sem er þeir vinna að þessa stundina.

Hér gætu þeir verið að vísa í aukapakka fyrir Diablo III, en það má ekki heldur afskrifa þann möguleika að annar leikur sé í framleiðslu.

Hvert hið rétta er komumst við líklega ekki að fyrr en þeir ákveða að þeir vilji sýna umræddan leik.

Ársskýrsla Activision Blizzard

1. mars 2010

Heavy Rain (PS3) - Leikjadómur

Flokkun: PlayStation 3, Umfjallanir, Ævintýraleikir — Vilhelm Smári @ 8:18 e.h.

heavy_rain_ss01

Ég man þegar ég sá Heavy Rain fyrst. Það var fyrir fjórum árum, árið 2006, þegar E3 stóð sem hæst. Quantic Dream sýndu stutt atriði með vélinni sem þeir voru að þróa. Ég ætlaði vart að trúa því þegar ég heyrði að þetta væri alvöru dót, ekki eitthvað pre-rendered drasl eins og Sony voru vanir að sýna (Killzone 2 kemur fyrst upp í hugann í þeim efnum). Það reyndist þó erfitt að finna einhverjar haldbærar upplýsingar um leikinn, og á endanum hvarf leikurinn af mínum eigin radar - það var hvort eð er nóg að bíta.

Það var svo á síðasta ári sem hann datt aftur inn á radarinn og ég komst að því að leikurinn væri loksins að koma út. Ég vissi að leikspilunin byggðist að miklu leiti á QTE - quick time events - þar sem maður þarf að vera snarpur að ýta á réttan takka, ellegar mistakast með viðeigandi afleiðingum. Ég vissi einnig að það væri ekki hægt að tapa per se, eitthvað sem er frekar óvenjulegt í leikjum í dag. Það sem gerði mig samt hve spenntastan var þegar ég prófaði leikinn á Tokyo Game Show í september síðastliðnum. Ég fékk að spila í gegnum eitt atriði sem FBI löggan Norman Jayden, sem fyrir utan allt sem hinar persónurnar geta hefur einnig að ráða yfir töfragleraugum sem gera manni kleyft að skanna staði í leit að sönnunargögnum. Því miður fór ekki betur en svo að ég gjörsamlega klúðraði slagsmálum og fyrir vikið kvaddi Norman hinn mannlega heim. Ég og félagi minn, sem stóð við hliðina á mér og spilaði í gegnum demó á öðrum stað í leiknum, skiptumst á skoðunum okkar um leikinn og við vorum báðir frekar sammála - þennan þyrftum við að kíkja betur á.

Það var svo fyrir 2 vikum að ég kom höndum mínum yfir leikinn, og síðan þá hef farið tvisvar í gegnum hann, auk þess sem ég hef spilað í gegnum síðustu atriði leiksins ótal sinnum til þess að skoða betur hina ýmsu enda sem maður getur fengið í leiknum.

(meira …)

Eldri færslur »

Knúið með WordPress

  • employment descrimination lawsuits against fema lawsuits
  • 4th degree tear baby tear
  • tip on how to grow taller grow
  • sweating of legs sweating
  • marriott towneplace suites chantilly va chantilly
  • old time fiddlers contest fiddlers
  • wedding putney vermont schrull putney
  • southlake carrol i s d southlake
  • i'm a little teapot download teapot
  • episcopal diocese of lmississippi diocese
  • birth announcements in federal way wa announcements
  • college admissions jobs massachusetts admissions
  • expenditures for new residential construction expenditures
  • galileo 12x50 water resistant binoculars resistant
  • paul anka seasons anka
  • auckland backpacker jobsearch website backpacker
  • mr gene's doghouse cincinnati ohio doghouse
  • vin afrique du sud afrique
  • pink guild layout on neopets layout
  • clown poem clown
  • oval plate hand painted france oval
  • polyp after endometrial ablasion polyp
  • madden 06 mp3 madden
  • annette otoole said annette
  • wuthering heights movie 2003 wuthering
  • replacements reissues track listing replacements
  • function of a lever function
  • el camino college classes camino
  • yorktown in yorktown
  • ameriprise finacial service inc finacial
  • giant footprints for advertising footprints
  • state pipeline regulatory agencies regulatory
  • westville lumpkin ga westville
  • brief history of modern china brief
  • recipe for tastee tacos hot sauce tacos
  • craig earl rawlins wyoming rawlins
  • antique styles types designations periods designations
  • beginners guide to joomla 1.5.0 joomla
  • signs of spoiled tuna spoiled
  • acapulco diana acapulco
  • mecury outboard pdf manuals mecury
  • backyard kitchen and bar backyard
  • bets friends bets
  • forclosed homes mileham lane spring texas forclosed
  • become a legit mystery shopper legit
  • glass painting on acetate for cards acetate
  • cleaning concentrate mrs clean concentrate
  • tonya virginia state university roanoke tonya
  • danielle tanner danielle
  • covenants of bellehaven colorado sprins covenants
  • pitbull mortgage pitbull
  • low productivity of teachers productivity
  • death of ignorance by fred bell ignorance
  • winkel zeeman winkel
  • electric cooperatives of arkansas cooperatives
  • ukraine transportation ukraine
  • weed pollen forecast edmonton ab pollen
  • moors settling in america moors
  • japanes department store japanes
  • phonetic word transcription phonetic
  • essen trueton essen
  • track congressional legislation congressional
  • frenzy wine frenzy
  • intelectual property theft define theft
  • open exits indianapolis highways exits
  • university of oregon athletics terry crabtree athletics
  • lodge at kennebunk motor inn kennebunk
  • russia putin nashi russia
  • zantac qoclickcom zantac
  • sunfish llewellyn sunfish
  • 1974 business professionally since stationery 1974
  • comitan de dominguez said dominguez
  • nellie speirs nellie
  • big tits curvy asses sasha asses
  • grafton township precincts township
  • eddie cantor mother day song cantor
  • 1958 newspaper headlines 1958
  • adidas 1 commercial ad adidas
  • dentists in somerset england somerset
  • canoscan 880f canoscan
  • mckesson stay dry skin protectant cream mckesson
  • sudbury soccer association sudbury
  • upgrades in vegas upgrades
  • tongs thai san antonio tongs
  • tlinglit carvers seattle wa carvers
  • hemet ca dmv hemet
  • robert hoppe biography hoppe
  • jessi summers pov jessi
  • emmet till case emmet
  • al noor clinic noor
  • vasque sundowner carhartt detroit jacke carhartt
  • tricia cox nixon wedding tricia
  • bay haven resteraunt cornish me resteraunt
  • wasko world all styles kickboxing organization kickboxing
  • pantech breeze tm black pantech
  • movie icon collage code myspace icon
  • psychological effects of meth psychological
  • homeopathic insulin homeopathic
  • define regrowth of a forest regrowth
  • non toxic hypoallergenic foam hypoallergenic
  • plants that repel snails repel
  • clemons joseph n clemons
  • ahmanson theather org theather
  • brian canter washington post canter
  • google checkout tibia gold tibia
  • notepad p notepad
  • barb and greg barb
  • trick or treat slinger wi treat
  • drain cable sleeving drain
  • schematic dc to ac converter schematic
  • graco neat seat reclining high chair neat
  • sasuke waterfall fight gif thread waterfall
  • serpent of satan serpent
  • 40th birthday present uk 40th
  • david crook astrology crook
  • will internet2 be ipv6 compatible only ipv6
  • dog groomers 46112 groomers
  • girls in plaster body cast plaster
  • ricoh camera revuew ricoh
  • southern calvert babtist church babtist
  • quotes on hysteria salem witch trails hysteria
  • used transmissions in indiana transmissions
  • belgium non immigrant visas immigrant
  • 3000gt tuner lug nuts 3000gt
  • basque country maps basque
  • a button on the n64 button
  • 1985 atc 250r front brakes line 250r
  • danni johnson millionaire danni
  • camp lejeune mef lejeune
  • proposed stimulas car tax credit stimulas
  • remodeling contractor mora nm mora
  • vanessa da mata m sica mata
  • iain abernathy bunkai abernathy
  • dolly parton no children dolly
  • wimberley fire department wimberley
  • tailor made cosmetic product tailor
  • replacement stero chevy blazer stero
  • skylight garage door skylight
  • yngwie malmsteen disciples of hell disciples
  • 1990 240sx energy suspension bushing kit suspension
  • under presure david presure
  • yiddish term for sand niggers yiddish
  • find jake dove born in 1920s jake
  • hersheys cocoa hersheys
  • star wars cantina creature photos cantina
  • cnsf togo parkia biglobosa togo
  • boolean thought boolean
  • laundry chute building directions chute
  • typewriter charts typewriter
  • 1 18 66 tv batmobile accessories batmobile
  • whois us whois
  • vellum envelopes in milwaukee vellum
  • people attracted to in wausa attracted
  • sport bloopers google video bloopers
  • sadness and sorrow clarinet mid sadness
  • antoine cleotis antoine
  • mens buckle boots buckle
  • was mother teresa a man teresa
  • reptile room snicket reptile
  • febuary 1 2009 oklahoma city oklahoma febuary
  • fire combustion and behavior combustion
  • ginkgo plant apart ginkgo
  • thailand travel book thailand
  • canadian vegetable gardening tips gardening
  • chief acrhitect chief
  • mejores juegos de sega genesis juegos
  • strain gauges for tensile testing tensile
  • personal hovercraft ocean capabilities hovercraft
  • mario kart ds screensaver download screensaver
  • gaucho brazilian barbecue gaucho
  • socrates academy socrates
  • eaton controllers eaton
  • mikhail baryshnikov defection photo mikhail
  • cancellation of social insurance number canada cancellation
  • basel newspaper basel
  • physiotherapy conferances india physiotherapy
  • artisan sink accesories artisan
  • compare ammunition caliber ammunition
  • deane bridges deane
  • hate crime in tn hate
  • franciscan octagon ironstone dinnerware 1970 s franciscan
  • iceland sagas travel guide iceland
  • kendrick wildcat amps kendrick
  • eye relief scope relief
  • margret gergen margret
  • archipelago botanicals organic botanicals
  • when to transplant blackberries in az blackberries
  • high speed pinewood derby graphite derby
  • scotty anderson guitar course scotty
  • email adresses of ski companys adresses
  • greer alison greer
  • private investigation manila philippines manila
  • americana quotes americana
  • dog weaning box weaning
  • elizabeth spices michigan spices
  • carrie underwood bozeman opening act bozeman
  • ymca in anne arundel county maryland arundel
  • van gogh cruise lines gogh
  • cleanse java cache cleanse